Styrkir frá stéttarfélögum

Þeir nemendur sem vinna á sumrin eða með skóla, eiga í flestum tilfellum rétt á styrkjum úr starfs- og endurmenntunarsjóðum sinna stéttarfélaga.

Við minnum því nemendur á að framvísa reikningum sínum frá Nóbel námsbúðum ehf. til sinna stéttarfélaga og eiga þannig kost á að fá prófbúðir endurgreiddar að fullu frá þeim. 💰

Umsóknarferlið er sáraeinfalt og fljótlegt (tekur 1–2 mínútur):

  1. Sæktu reikninginn þinn frá Nóbel námsbúðum ehf. á síðunni Minn aðgangur.
  2. Skráðu þig inn á vefsíðu þíns stéttarfélags, sæktu um styrk úr starfs- eða endurmenntunarsjóði og láttu reikninginn fylgja með í viðhengi.
  3. Styrkur er lagður inn á bankareikninginn þinn og er eðlilegur afgreiðslutími um 7–14 dagar.

Reglur um styrki úr starfs- eða endurmenntunarsjóðum eru mismunandi á milli stéttarfélaga, en flest þeirra veita 100% styrki fyrir námskeið á vegum Nóbel námsbúða ehf.

Nánari reglur og leiðbeiningar fyrir hvert stéttarfélag má finna inn á vefsíðum þeirra, en hér fyrir neðan eru tenglar á vefsíður stærstu stéttarfélaga landsins:

 

Nýlega skoðaðar vörur

    © 2012–2026 Nóbel námsbúðir ehf. Allur réttur áskilinn.

      • Apple Pay
      • Google Pay
      • Maestro
      • Mastercard
      • Visa
      • Aur
      • Netgíró
      • Pei